Nýja bloggið mitt er á slóðinni www.helga.trykker.com
Endilega kíkið þangað og kvittið.
Vil líka benda á að ég hef núna nýja email adressu, helga.kolbeinsdottir@yahoo.com
Nýtt blogg
Eurovision
Jæja, gott fólk. Ég hef víst ekki verið nógu dugleg að blogga undanfarið. Mamma er úti í Noregi á reunion hjá lýðháskólanum sem hún sótti fyrir 40 árum síðan. Svoleiðis að við pabbi höfum verið ein heima, eða þangað til hann stakk af á Kárahnjúka í morgun. Ég horfði á Eurovision heima í kvöld og Hrafnhildur, Heiðrún og Halla kíktu í heimsókn að horfa á það með mér. Við H-in fjögur ákváðum að útbúa stigatöflu og gefa hverju landi fyrir sig einkunn fyrir fatnað, söng, lag, dans og sviðsframkomu. Hjá mér voru Ísland og Danmörk í efsta sæti með 50 stig hvor. Grikkland og UK komu svo í annað sætið og ég er alveg búin að steingleyma hverjir voru í því þriðja. þetta var bara mjög skemmtilegt kvöld og Ísland stóð sig frábærlega, þrátt fyrir að hafa ekki árangur sem erfiði. Ég gæti ekki verið meira ósammála úrslitunum, enda fannst mér framlag Rússa einna síst allra í keppninni í ár.
Ég er annars í vandræðum með þetta blessaða blogg mitt því ég get ekki sett inn myndir með færslunum mínum þegar ég er á makkanum
Ég sendi fyrirspurn á blogg.is fyrir tæpri viku og hef ekkert svar fengið. Vonandi finnst lausn á þessu því ég vil alls ekki þurfa að skipta um blogg enn einu sinni.
Ég hef þetta ekki lengra, en býð góða nótt gott fólk.
Breytt framtíðarplön
Fjóla skammaði mig svo fyrir bloggleysið á msn í dag að ég þori ekki öðru en að henda einni færslu hingað inn. Ég sagði víst síðast frá því að ég væri á leiðina uppí sumarbústað, en það var afdrifarík ferð. Við vorum öll í gífurlegri afslöppun, milli þess sem ég og mamma fórum með Fróða í labbitúra og ræddum um framtíðarplön. Niðurstaðan var heldur óvænt, en ég hef nú ákveðið að byrja í skólanum eftir áramót, eða í janúar 2009 og líkast til vinna hér að klakanum fram að því, þó sennilegast á öðru sambýli en ég er á núna. Þetta er allt saman á frumstigi og margt í vinnslu enn. Einnig kom til greina að vinna úti í Noregi fram að áramótum, en það kemur þó langbest út fjárhagslega að vera hér heima á Hótel Mömmu og safna pening.
Ég skrifa hér á glænýju MacBook tölvuna mína, en ég er enn að læra á gripinn og kann ekki enn að setja myndir inn með færslunni á Maccanum, en ég leysi úr því fljótlega með því að fara í gömlu heimilistölvuna. Annars er ég búin að bæta við fullt af myndum á myndasíðuna mína, www.flickr.com/helgublogg svo endilega kíkið þangað
Í dag var ég í fríi og afþakkaði pent aukavakt sem mér var boðin. Í staðinn fór ég í Kringluna og svo í göngu með Kristínu. Ég fór svo heim til Sólrúnar að hjálpa henni með lokaverkefnið og við pöntuðum okkur Wilsons pizzu eins og siður og venja er orðin á föstudagskvöldum. Um helgina verður bara afslöppun og vídjógláp, en ég er búin að sækja mér nokkra þætti úr Jericho og sömuleyðis Jekyll sem er nýir þættir á skjá einum sem eru bara snilld (Fjóla þú verður að kíkja á þá með mér).
Ég býð annars bara góða nótt með loforð um að verða betri bloggari.
Farin uppí bústað!!!
Gott fólk. Mamma og Pabbi eru komin heim og við erum óvænt á leið uppí bústað öll þrjú. Ekki örvænta, ég er í símasambandi fyrir þá sem ekki geta verið án mín svo lengi.
Eigið æðislega helgi.
P.S. Maccinn er kominn í hús
Umsóknin í MF komin í réttar hendur
Umsóknin mín ætti nú að vera komin í réttar hendur, en hún var send með hraðpósti til MF rétt fyrir helgi. Ég á ekki von á öðru en að komast inn. Það sem veldur mér frekar áhyggjum er veik staða krónunnar. Norska krónan er núna 15 krónur íslenskar, en var 11 kr. þegar ég hóf umsóknarferlið
Ég hef verið að skoða auglýsingar um húsnæði til leigu og þegar ég hef breytt verðinu í íslenskar krónur er það jafnvel dýrara en gengur og gerist hér heima! Ég hef þess vegna þónokkrar áhyggjur af því hvernig þetta á að ganga upp fjárhagslega.
Mig dreymdi svo í nótt að ég væri í Californiu með Höllu og Marisu og einhverjum fleiri. Ég var með Fróða með mér og ég og Halla vorum að hótelherbergi þegar Marisa kom í gættina með Newfoundland hundinn sem mamma hennar á. Fróði hljóp strax að honum og vældi svo ógurlega því að Nýfundnalandshundurinn beit af honum eyrað!!! Ég hrökk upp við þennan vonda draum í morgun.
Annars er nýr fjölskyldumeðlimur á leið til landsins frá San Diego á næstu dögum. Það er svört MacBook sem mamma og pabbi festu kaup á fyrir mig þarna úti.

Ég hlakka ekkert smá til að fá hana í hendurnar. Ég er auk þess byrjuð á fjarnámskeiði í ljósmyndun sem er bara stuð.
Ég ætla svo að enda á þessu dúllumyndbandi sem ég sá á kvikmynd.is, bara sætt
Eigið góðan dag
Afmælið mitt var í síðustu viku!!!
Loksins drattast maður til að blogga!!!
Ég hef nú verið að bralla ýmislegt síðan síðast. Fyrst ber að nefna laugardaginn 26. apríl, en þá buðu mamma og pabbi mér og þeim fjölskyldumeðlimu sem eru á landinu í mat á Geysi í tilefni af afmælinu mínu daginn eftir.

Við fengum svaka góðan mat og svo súkkulaðimús í eftirrétt.

Hjalti var semsagt eina systkinið sem ekki var erlendis

Hjalti og María Erla

Hér er gamla settið, en þau eru nú í San Diego, Californiu að heimsækja Dóru, systur pabba.
Á sjálfan afmælisdaginn bauð ég góðum gestum heim og eldaði fyrir þá Mexíkanskan kjúklingarétt og franska súkkulaðitertu.

Beðið eftir að byrja að borða

Maturinn vakti mikla lukku

Gestirnir

Sólrún

Þetta gaf Anna Birna mér

Ferfætlingum var að sjálfsögðu boðið
Á mánudaginn var síðast YD KFUK fundurinn.

Það var frábært mæting og svaka fjör!
Guðbrandur og Halla buðu svo mér Hjalta og Maríu Erlu í mat til sín. Gígja var svo mætt með nýja gægjanum sínum og sagði okkur heldur óvæntar fréttir.

Guess what!
Ég hef þetta ekki lengra í bili, en ég setti slatta af myndum inná myndasíðuna mína svo endilega kíkið þangað
Svo enda ég á mynd af Fróða ofurkrútti sem býður ykkur góða nótt

Ganga í góðu veðri og sorgarfréttir
Afsakið bloggleysið undanfarna daga. Ég bæti það upp núna því ég ætla að henda inn nokkrum myndum frá deginum í dag, en ég og Sólrún fundum stað, rétt fyrir utan Hvaleyravatn þar sem við leyfðum hundunum að hlaupa lausum og var Moli með í för.

Sólrún

Moli

Vinirnir

Nala fann einhverja holu og byrjaði að grafa, en svo vildu hinir auðvitað fá að vera með.

Fróði var moldugur eftir uppgröftinn

Nala sæta

Moli flotti
Ekki gleyma að kíkja líka á myndasíðuna mína.
Annars hefur vikan bara verið ágæt, ég hef kíkt í nokkrar göngu bæði með Sólrunu og Kristínu.
Ég fékk svo þær sorgarfréttir á þriðjudaginn að tíbbarnir Delores og Ferdinand væru farin frá okkur.

Þau fengu að fara saman inní svefninn langa á mánudaginn.

Ferdinand var orðinn 13 ára

Delores um 11 ára.
Ég votta eigendum þeirra mína dýpstu samúð.
Ég vona að þið fáið notið góða veðursins í dag
Kári á afmæli í dag!
Til hamingju með 21 árs afmælið elsku bestasti litli bróðir.

Hafðu það gott í sólinni á Hawai.
Knús og kossar frá Siss.
Tíbbaganga í Heiðmörk
Ég passaði Nölu í nótt fyrir Sólrúnu. Hún kom svo með mér í tíbbagöngu í Heiðmörkinni um hádegið í dag. Ég tók nokkrar myndir fyrir tíbbasíðuna en ætla að henda nokkrum hingað inn líka.

Einn af flottu öldungunum okkar

Fróði í svaka leik

Ein af sætu dömunum á svæðinu

Toby og Monza gamla

Hvaða furðuvera er nú þetta?

Nala var skoðuð í bak og fyrir

En var fljótt tekin í sátt.

Þessi var nú ekki mikið fyrir að heilsa uppá Fróða, en hún er fjögurra ára gömul og fjórum kílóum léttari en hann.

Allir voða prúðir svo þeir fái nú örugglega nammi.

Hvar er Fróði?

Fróði var lengst af voða prúður, en tók svo uppá því að verja eitthvað bein sem hann fann og gerði allt vitlaust

Sólrún var dugleg að munda vélina.
Það er svo hellingur af myndum til viðbótar á myndasíðunni minni fyrir þá sem vilja skoða.
Mamma liggur veik uppí rúmi og ég ætla að fara og sjá hvort ég geti ekki dekrað eitthvað við hana.
Vonandi verður svo eitthvað skemmtilegt að gera hjá mér í kvöld og ykkur líka
Ég minntist á það í síðustu færslu að ég ætlaði í göngu með Mola, Kristínu, Arisi og Sóldísi auk Smára í Guðmundarlundi að vana. Sú ganga var afar vel heppnuð og varð fjölmennari en upphaflega var áætlað þar sem Sólrún og Nala ákváðu að slást í för með okkur. Ég mundaði cameruna að vana með misgóðum árangri…

Kristín og Smári með voffalingana

Moli og Mósi náðu vel saman

Fróði Mosakall

Hmmm… hvar endar Sóldís og hvar byrjar Fróði?

Saman uppi á borði

Flottu skvísurnar hennar Kristínar

Kristín með gellurnar sínar

Ein pínu artsy af Smára og Kristínu

Vinirnir heima hjá mér eftir gönguna

Molabjútíið
Kíkið svo á myndasíðuna mína ef þetta er ekki nóg fyrir ykkur
Ég átti dásamlegan frídag í gær. Svaf lengi frameftir og var rétt komin á ról þegar mamma kom heim af morgunvaktinni. Hún ákvað að bjóða mér út að broða á vetingastaðinn Geysi sem er niðrí bæ. Þar fengum við rosalega góðan mat og ekki spillti fínt útsýni. Þegar komið var að því að borga uppgötvaði mamma að hún hafði skilið VISA kortið eftir í vinnunni og debet kortinu hafði hún gleymt í tíu ellevu. Sem betur fer hafði ég tekið veskið mitt með. Þetta var allt fremur skondið, enda á maður ekki von á að þurfa að borga þegar manni er boðið út. Við röltum svo aðeins um bæinn, enda æðislegt veður og enduðum á því að fara á kaffihús.
Ég svaf svo vel og lengi frameftir í dag. Mamma plataði mig svo með sér í 1 og hálfs tíma göngu í Heiðmörkinni, sem var reyndar mjög fínt. Veðrið alveg geggjað og Fróði naut sín svo vel, enda fékk kappinn að hlaupa laus. Nú er lambalærið komið á grillið og Hjalti og María Erla á leið hingað í mat.
Lára hans Kára á 21 árs afmæli í dag.

Til hamingju Lára mín, vonandi eigið þið Kári frábæran dag!
Knús og kossar frá mér og öllum á Ósabakkanum


